#Fjallmánaðarins
Fjallmánaðarins er sería sem ég byrjaði með það í huga ég þurfti að æfa mig að teikna/mála fjöll meira, þar sem ég hafði fengið risastóra sérpöntun af Tindfjöllum. Ég ákvað að teikna fjöllin í iPad í forriti sem heitir Procreate og teikna ég þau þar frá grunni. Ég setti mér það markmið að klára a.m.k. eitt fjall í hverjum mánuði í heilt ár.
Ég deildi þessari áskorun á TikTok aðganginum mínum þar sem hún fékk mjög góðar undirtektir og varð kveikjan að þessu öllu saman.
Ég fékk fullt af frábærum hugmyndum af íslenskum fjöllum og þarf að velja vel úr listanum hvaða fjall ég teikna næst! Til þess að halda mér enn meira á tánum ákvað ég að gefa prent af einu fjalli í lok hvers mánaðar sem hefur verið virkilega skemmtilegt.