Sérpantanir
Hagnýtar upplýsingar um sérpöntun
Hægt er að leggja inn sérpöntun með því að fylla út formið hér að neðan. Ef sérpöntunin tengist tilteknum stöðum, minningum eða persónulegum hlutum er æskilegt að fylgja henni myndefni sem viðhengi — það hjálpar til við að fanga rétta stemningu og tryggja að verkið endurspegli hugmyndina sem þú ert að leitast eftir.
Verð og greiðsluskilmálar
Verð er metið út frá stærð, efnisnotkun og umfangi vinnunnar.
Staðfestingargjald kann að vera innheimt við samþykki pöntunar og lokagreiðsla fer fram fyrir afhendingu verksins.
Öll verðtilboð eru veitt fyrirfram svo þú fáir skýra mynd af kostnaði áður en vinna hefst.
Ferlið
Eftir að sérpöntun hefur verið samþykkt er farið yfir hugmyndir, myndefni og óskir. Þar sem hvert verk er handgert og einstakt getur ferlið falið í sér reglulegar uppfærslur eða staðfestingar, eftir því sem samið er um.
Afhending og sending
Hægt er að sækja verkið á vinnustofuna mína á Skólavörðurstíg 3, 3. hæð, eða fá það sent heim samkvæmt samkomulagi.
Ef óskað er eftir sendingu er hún bókuð sérstaklega og kostnaður metinn út frá stærð, þyngd og pökkun verksins.
Réttindi og birting
Listamaður áskilur sér höfundarrétt verksins.
Viðtakanda er ekki heimilt að afrita eða fjölrita verkið án skriflegs leyfis.
Með samþykki er mögulegt að birta myndir af sérpöntuðum verkum á samfélagsmiðlum eða vefsíðu sem hluta af vinnusýnum og sýningarstarfi.